Gullbringa bókaforlag
Úrval smásagna
36 smásögur úr áður útgefnum bókum, 1981-2021
„Út úr smásögum Þórarins má hæglega lesa skilaboð sem mætti orða eitthvað í þessa veru: Sjáið hvað lífið getur verið flókið og skrýtið, við manneskjurnar undarlega saman settar, þversagnakenndar og breyskar, oftlega fórnarlömb alls konar tilviljana og aðstæðna sem við ráðum ekki við, stundum algjörir leiksoppar hugsana okkar, tilfinninga og langana. Við erum öll, hvert á sinn hátt, meiri eða minni ráðgáta.
Húmor Þórarins Eldjárns ljær mannlífinu sjarma fjölbreytileikans, óreiðunnar og skringilegheitanna. Hann hjálpar okkur til að horfast í augu við hið skrýtna í okkur manneskjunum og fáránleikann í tilverunni með bros á vör.“
Brot úr eftirmála Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem valdi sögurnar.

Sparaðu með pakka
Þessi bók fæst líka í pakka
Nýju bækurnar 2026
Allar þrjár nýju bækurnar: stökur, þulur og smásögur.
- Eitt og annað 6,600 kr
- Tólf þulur 7,700 kr
- Úrval smásagna 8,800 kr
23,100 kr18,000 krÞú sparar 5,100 krÞessi bók fæst líka í pakka
Söfnin
Þrjú söfn: prósaljóð, kvæði og smásögur.
- Dreymt bert 5,000 kr
- 100 kvæði 6,000 kr
- Úrval smásagna 8,800 kr
19,800 kr16,000 krÞú sparar 3,800 kr
