1 2

Gullbringa bókaforlag

Tólf þulur

Venjulegt verð 7.700 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 7.700 ISK
Útsala Uppselt
Virðisauki innifalinn

TÓLF ÞULUR eru þulubálkur í anda þeirra þulna sem ortar hafa verið á íslensku frá öndverðu.  Þórarinn Eldjárn yrkir fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst börn. Þetta er fyrsta bók Þórarins með þulum. Hver og ein þeirra tekur fyrir ákveðið efni, allt frá jörðu og út í geim. Myndir eru eftir Lindu Ólafsdóttur. 

Þannig lýkur bókinni: 

Þuluþökk
Höfundum þeim sem þuldu
skal þakkað, svo sem Huldu
og öðrum af þeim stóru 
sem á undan fóru
ekki síst Theódóru
og einnig Erlu
ortu þær marga perlu.
Þakkað skal allt sem Jón Árnason gaf
og Ólafur Dav.
Loks skal lof síst spara
hinum léttstíga nafnlausa skara
ættmæðra og ættfeðra vorra
allar götur frá Snorra.