Skilmálar vefverslunar

Skilmálar vefverslunar

Fyrirtækið á bakvið vefsvæðið gullbringa.is er Gullbringa ehf. kt. 590105-0660.

Gullbringa ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Hægt er að fá vörur afhendar á næsta afgreiðslustað Dropp, eða með heimsendingu á vegum Dropp sem gildir á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu.
Sé pantað fyrir hádegi er hægt að nálgast vöruna síðar sama dag á afgreiðslustöðum Dropp á höfuðborgarsvæðinu.
Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu er einnig samdægurs sé pantað fyrir hádegi.

Um vörur sem dreift er af Dropp og Flytjanda gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.

Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent frá okkur til flutningsaðila og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila. 

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru birt með inniföldum 24% virðisauka þar sem það á við, en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram sé sendingarkostnaðar getið í lýsingu á vöru. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan er keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef senda þarf vöru til baka vegna vöruskila, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leyti er vísað til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hún eða hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna hans skal það mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.